Klaufar senda frá sér nýtt lag

Klaufar senda frá sér nýtt lag

9. maí 2026 kl. 07:50

Hljómsveitin Klaufar hefur sent frá sér nýtt lag sem ber heitið „Huggun harmi gegn“. Lagið er fyrsta nýja efnið sem sveitin sendir frá sér á afmælisári sínu, en Klaufar fagna tuttugu ára starfsafmæli á þessu ári.

Lagið er eftir söngvara sveitarinnar, Guðmund Annas Árnason, en textann samdi bassaleikarinn Friðrik G. Sturluson. Aðrir meðlimir sveitarinnar eru Birgir Nielsen trommuleikari og Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari. Útsetning lagsins var í höndum hljómsveitarinnar sjálfrar.

Upptökur fóru fram í Stúdíó Paradís í vetur þar sem Ásmundur Jóhannsson sá um upptökur, en Jóhann Ásmundsson annaðist tónjöfnun. Þá leikur Snorri Sigurðarson á trompet í laginu og setur sérstakan svip á hljóðheim þess.

Klaufar hyggjast halda upp á tímamótin með útgáfu fleiri laga á árinu og er „Huggun harmi gegn“ fyrsta lagið sem hlustendur fá að heyra af því efni.

FM Trölli