
Helgin þín byrjar með enskum morgunverði hér á FM Trölla!
Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir verður í beinni útsendingu frá Stúdíói 7 á Englandi á morgun, föstudaginn 10. apríl, frá klukkan 8 til 10 (að íslenskum tíma) hér á FM Trölla.
Sem fyrr mun Oskar spila frábæra tónlist úr öllum áttum og kíkja á helgarveðrið. Hann skoðar líka forsíður íslensku og bresku blaðanna, býður hlustendum að taka þátt í morgunleikfimi, og segir sögur af fólki utan úr heimi.
Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.
FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, á Hvammstanga og nágrenni.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á fmtrolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com
Minnum einnig á skip.fmtrolli.is sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

