Egg, beikon og bakaðar baunir í beinni frá Bretlandi kl. 08

Egg, beikon og bakaðar baunir í beinni frá Bretlandi kl. 08

28. maí 2026 kl. 23:07

Oskar Brown verður í beinni útsendingu á FM Trölla í dag, föstudaginn 29. maí frá klukkan 8:00 (að íslenskum tíma).

Oskar stjórnar þættinum Egg, beikon og bakaðar baunir og spilar allskonar tónlist, bæði gamla og nýja, til þess að koma hlustendum FM Trölla í stuð fyrir helgina.

Hlustið á Egg beikon og bakaðar baunir á FM Trölla á föstudögum frá kl. 8:00-10:00.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden, tunein.com og í sjónvarpi Símans.

FM Trölli