Drykkir innbyrðis senda frá sér nýtt lag – „Framtíðin“

Drykkir innbyrðis senda frá sér nýtt lag – „Framtíðin“

28. júlí 2026 kl. 17:07

Akureyrska hljómsveitin Drykkir innbyrðis hefur sent frá sér nýtt lag sem ber heitið „Framtíðin“. Lagið er komið út á helstu streymisveitum, þar á meðal Spotify og YouTube, og er jafnframt komið í spilun á FM Trölla.

Drykkir innbyrðis var stofnuð á Akureyri í ársbyrjun 1986. Sveitin vakti strax athygli þegar hún hafnaði í 2. sæti Músíktilrauna sama ár og var áberandi í íslensku tónlistarlífi næstu árin. Starfsemi sveitarinnar lá niðri frá árinu 1990, þar til ákveðið var á síðasta ári að blása nýju lífi í verkefnið.

Undanfarið hefur hljómsveitin unnið að upptökum á nýrri plötu sem kemur út í haust. Af því tilefni verða tónleikar sveitarinnar á Græna Hattinum formlegir útgáfutónleikar plötunnar.

Drykki innbyrðis skipa:

  • Rúnar Örn Friðriksson – söngur

  • Viðar Garðarsson – bassi

  • Haukur Eiríksson – hljómborð

  • Eiríkur S. Jóhannsson – gítar

  • Ingvi Rafn Ingvason – trommur

„Framtíðin“ markar því nýjan kafla í sögu sveitarinnar, tæpum fjórum áratugum eftir að hún steig fyrst á svið.

FM Trölli