Dan Van Dango gefur út plötuna „Cafe Royale“

Dan Van Dango gefur út plötuna „Cafe Royale“

13. apríl 2026 kl. 08:02

Tónlistarmaðurinn Dan Van Dango hefur sent frá sér plötuna „Cafe Royale“, sem dregur nafn sitt af samnefndum bar í Hafnarfirði sem naut vinsælda á sínum tíma.

Platan er að mestu leyti organísk, byggð á lifandi flutningi þar sem mörg lög eru tekin upp í einni töku. Með Dan Van Dango í verkefninu eru Flóki Árnason á trommum og Áróra Eyberg Valdimarsdóttir í bakröddum.

Efnislega sækir Cafe Royale innblástur úr ólíkum áttum og persónulegri reynslu. Þar má finna sögur af fortíðardraugum og tímabilum þar sem lífið var á köflum óstöðugt, ásamt endurminningum úr æsku og uppvaxtarárum.

Einstök lög taka á mismunandi hliðum lífsins. Í laginu „Dagurinn sem ég dey“ er til dæmis komið inn á kvíða og ótta sem fylgdi veikindahugsunum á yngri árum, á meðan „Óþveri“ fjallar um hversdagsleg augnablik og leiðir til að finna jafnvægi – jafnvel með því einu að staldra við og horfa á það sem skiptir máli.

Platan er aðgengileg á helstu streymisveitum, en nánari upplýsingar um lög og texta má finna á heimasíðu listamannsins
https://www.danvandango.com/

FM Trölli